Random blogg
Nú er maður búinn að skila inn mastersritgerðinni. Það er gott. Á samt eftir að flytja vörnina en því verður lokið þann 28. júní. Það verður gott.Núna á ég heima í Danmörku. Það er ágætt en maður talar ekki málið almennilega og er ekki á fólksbíl. Ég reyni að læra dönsku, fer á námskeið en það gengur ekki mjög hratt. Mér gengur betur að lesa og skrifa en það er bara ekki séns að skilja hvað fólk segir nema það tali við mann eins og maður sé hálfviti. Á móti kemur svo að ég held að ég sé að missa tökin á tungumálinu íslensku (lítið í skv. sk reglunni gleymi því aldrei - eða var það öfugt?).
Hvað á ég að gera næst?
Posted by Hjörtur at 6/18/2010 11:35:00 PM | 0 comments read on